Við erum rótgróin íslensk fasteignasala og höfum um árabil sérhæft okkur í sölu fasteigna á Spáni.
Hjá okkur starfa löggiltir fasteignasalar með full réttindi bæði á Íslandi og Spáni (API) með mikla reynslu af fasteignasölu á Spáni og sjá þeir um allt söluferlið í samvinnu við virta spænska lögfræðinga. Öll áhersla er lögð á trausta og örugga þjónustu með hagsmuni viðskiptavina okkar að leiðarljósi. Í boði eru góðar heildarlausnir þar sem öllu kaupferlinu er fylgt vel eftir frá upphafi til enda.
Starfsmenn okkar eru ennfremur með háskólamenntun í viðskiptafræðum og mikla reynslu í fasteignaviðskiptum, sem nýtist viðskiptavinum okkar vel.
Við aðstoðum við að skipuleggja skoðunarferðina, velja staðsetningu og heppilega eign, kaupsamningsgerð, útvegum NIE númer, aðstoðum við fjármögnun, bankamál og allt sem til fellur.
Þú ert í góðum höndum hjá okkur.