SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*EINBÝLISHÚS Í EKTA SPÆNSKUM BÆ STUTT FRÁ ALICANTE*-*FRÁBÆRT VERÐ*
Falleg, rúmgóð og vel skipulögð einbýlishús á tveimur hæðum í fallegum spænskum bæ, stutt frá Alicante. Góð verönd út frá stofu, sérgarður með einkasundlaug. Sameiginlegur sundlaugargarður. Um 30 mín akstur frá Alicante, 10-20 mín akstur niður á ströndina í Guardamar eða La Marina. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni. Örstutt labb á local veitingastaði í bænum, en stutt í stærri bæi eins og Almoradi (4km), Guardamar (15km), Rojales (6km) og Torrevieja (20km). Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum. Húsið er vel skipulagt með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, þremur baðherbergjum og gestasnyrtingu.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,[email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir. GSM 777 4277
Nánari lýsing:Neðri hæð: gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými ásamt svefnherbergi með sér baðherbergi. Gestasnyrting og þvottahús.
Efri hæð: tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Stórar svalir út frá svefnherbergjum.
Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar og grilla. Einkasundlaug og sameiginlegur sundlaugargarður. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.
Örstutt göngufæri í miðbæinn þar sem hægt er koma við hjá bakaranum og fá sér nýbakað brauð, eða kjötkaupmanninum og velja sér góða steik á grillið.
FRÁBÆRT VERÐ, frá: 359.000 Evrur. (ISK 52.000.000,- miðað við gengi 1E=145ISK)
Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótarkostnaði. þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.
Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: einkasundlaug, sameiginlegur sundlaugargarður, bílastæði, air con,
Svæði: Costa Blanca, Daya Nueva,