SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTT PARHÚS Á FRÁBÆRUM STAÐ* – *GOTT VERÐ* - *STUTT Í VERSLANIR OG ÞJÓNUSTU*
ÞÍN DRAUMAEIGN Á SPÁNI, ÞAR SEM SÓLIN SKÍN Á ALLA
Stórglæsileg, björt og vel hönnuð parhús á tveimur hæðum með lokuðum einkagarði og sér sundlaug í Dona Pepa/Quesada, um 30 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi+gestasnyrting, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Flott hönnun. Góð verönd framan við húsið. Stór lokaður einkagarður með einkasundlaug. Útisturta og tengi fyrir heitan pott. Svalir út frá svefnherbergjum á efri hæð. Stór þakverönd með góðu útsýni. Möguleiki á kjallara með sumum húsunum.
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected].
Nánari lýsing:Neðri hæð.
Komið er inn í opið rými þar sem er stofa, borðstofa og opið eldhús við borðstofu. Úr stofu og einnig úr eldhúsi er gengið út á góða verönd. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta. Gott svefnherbergi og baðherbergi.
Efri hæð:
Tvö svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi. Útgengi út á svalir. Góðar þaksvalir.
Möguleiki á kjallara með sumum húsunum.
Fullfrágenginn garður.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun með mótor.
Rafdrifnir gluggahlerar.
Fullbúin baðherbergi með sturtugleri og speglum.
Fullbúið eldhús með eldavél, viftu, ísskáp, uppþvottavél og þvottavél.
Vel innréttaðir skápar í svefnherbergjum.
Stæði fyrir bíl í lokuðum garði.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. La Marquesa, La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flottar eignir á frábæru verði og vel staðsettar á hinu vinsæla Dona Pepa svæði. Einstakt tækifæri fyrir fólk sem vill njóta lífsins.
Verð miðað við gengi 1Evra=145 ISK:
Frá 389.000 evrur (ISK. 56.400.000) + 10% sjattyr og ca. 3% kostn. við kaupin.
Húsið er 93 fm.
Verönd 15 fm.
Þakverönd 31 fm.
Samtals 139 fm.
Hægt er að fá húsin afhent fullbúin fallegum húsgögnum gegn viðbótargreiðslu, þannig að ekkert er annað en að flytja inn og byrja að njóta frá fyrsta degi.
Húsin eru í byggingu og verða afhent tilbúin í ágúst 2025-apríl 2026.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá traustum og öruggum byggingaraðila með áratuga reynslu.
Hafið samband og bókið einkaviðtal.Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílastæði, þakverönd, air con, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Dona Pepa,