SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR: GÆÐI, RÝMI, BIRTA* - *STUTT Í LA ZENIA BOULEVARD*Vönduð 3ja herb. íbúð á frábærum stað á La Zeniasvæðinu, stutt frá Villamartin, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 20 mín göngufæri á fallega strönd og 15 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, nýju og flottu verslunarmiðstöðina. Stutt göngufæri í Los Dolces þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastaða og verslana. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi.
ÍBÚÐIN VAR SELD EN KOM AFTUR Í SÖLU ÞAR SEM FJÁRMÖGNUN NÁÐIST EKKI.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 893 2495
Nánari lýsing:Um er að ræða lyftuhús með 3ja og 4ra herb. vel hönnuðum, rúmgóðum og björtum íbúðum. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/borðstofu og stóru eldhúsi með fallegri innréttingu. Góðar svalir. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Góð sameign sameiginlegum sundlauargarði. Góð leikaðstaða fyrir börnin.
Íbúðirnar afhendast með rafmagnstækum í eldhúsi, (ísskápur, ofn, helluborð, þvottavél, uppþvottavél, gufugleypir og örbylgjuofn).
Einnig eru íbúðirnar afhentar með aircon með bæði hita og kulda.
Sér geymsla og stæði í lokuðu bílakjallara fylgja.Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. í Los Dolces og La Zenia Boulevard, sem ný og glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Verð:
3ja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 254.000 Evrum+kostn. (ISK. 38.100.000 gengi 1Evra/150 ISK)ÍBÚÐIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.isEitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con, bílakjallari,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,