SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEG EINBÝLISHÚS Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* – *GOTT VERÐ*Falleg og vel hönnuð einbýlishús með lokuðum garði verönd út frá stofu, einkasundlaug og möguleika á þakverönd í La Herrada/Los Montesinos, ekta spænskum bæ, um 30 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, borðstofa og rúmgott eldhús.
Stórar svalir út frá svefnherbergi á efri hæð og auk þess möguleiki á þakverönd.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]
Nánari lýsing:Neðri hæð: Komið er inn í opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými . Eitt svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi, baðherbergi. Útgengi út á stórar svalir.
Stæði fyrir bíl inni á lokaðri lóð.
Einkasundlaug, sem tengist vel góðri verönd út frá stofu. Þar er gott pláss t.d. til að borða úti eða njóta sólarinnar við sundlaugarbakkann.
Tilbúið til afhendingar í desember 2025.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. La Marquesa, og La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15-20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Los Montesinos er skemmtilegur ekta spænskur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi hefðbundnu spænsku bæjarlífi, Fiestum og ýmsu skemmtilegu, verslunum og veitingastöðum. Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Ca. 10 mín. akstur á tvo góða golfvelli, La Finca og La Marquesa, og ótal fleiri góðir golfvellir eru í innan við 20 mín akstursleið frá Los Montesinos. Ciudad Quesada og Dona Pepa, eru stutt frá, vinsælir og líflegir bæir sem iða af mannlífi allt árið.
Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.Verð miðað við 1EVRA = ISK150
Verð frá 303.900 evrum (ISK 45.500.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: bílastæði, þakverönd, air con, einkasundlaug, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Los Montesinos, La Herrada,