SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐAR PENTHOUSE ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ*-*STÆÐI Í BÍLAKJALLARA*-*TIL AFHENINGAR STRAX*
Glænýjar og vandaðar 4ra herb. penthouseíbúðir á frábærum stað í Villamartin örstutt frá nokkrum góðum golfvöllum, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín akstur á fallega strönd og 25-30 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, vinsælustu verslunarmiðstöðina á svæðinu. Göngufæri í verslanir og veitingastaði, líkamsræktarstöð ofl. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar strax.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.
Nánari lýsing:Um er að ræða 3 nýbyggð lyftuhús með 3ja og 4ra herb. vel hönnuðum samtals 94 íbúðum. Íbúðirnar eru með tveimur eða þremur svefnherbergjum og einu eða tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð, með sér garði, miðhæðum, með stórum svölum eða á efstu hæð og þá með svölum og stórum einka þaksvölum. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sundlaug, heitum pottum og líkamsræktaraðstöðu. Góð leikaðstaða fyrir börnin. Frábært útsýni m.a. til sjávar.
STÆÐI Í BÍLAKJALLARA FYLGIR ÖLLUM ÍBÚÐUM.
Íbúðunum fylgir einnig sér geymsla.Rólegur staður en stutt er á fallega hvíta sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í nágrenninu, t.d. í Villamartin Plaza og La Fuente. Stutt í La Zenia Boulevard, vinsælu verslana, veitingastaða og afþreyingamiðstöðina.
Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira.
Fjölbreytt úrval golfvalla er í næsta nágrenni, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Hægt er að velja íbúðir sem snúa í suður, vestur eða austur.
Aðeins örfáar íbúðir eftir.
Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK:
3ja herbergja íbúð, tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi. Verð frá 206.000 Evrum (ISK 30.900.000) + kostn.
4ra herbergja 106 fm. petnhouse íbúð, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Sér 70 fm. þakverönd. Samtals 176 sérafnotafm. + stæði í bílageymslu og sér geymsla.
Verð frá 301.000 Evrum (ISK 45.100.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar strax.
Hægt er að fá þær afhentar fullbúnar húsgögnum og húsbúnaði gegn aukagjaldi.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sjá nánar u m fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.isSKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con, stæði í bílakjallara, heitur pottur,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,