SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEGAR ÍBÚÐIR Á GÓÐUM STAÐ VIÐ STRÖND* *FRÁBÆR AÐSTAÐA TIL ÚTIVERU OG ÍÞRÓTTAIÐKUNAR.
Glænýjar og vandaðar 3ja herb. íbúðir við strönd í Mar De Pulpi, spennandi nýjum stað í Almeriu héraðinu, ca. 2 klst. akstur frá Alicante flugvelli. Öll þjónusta á svæðinu, verslanir og veitingastaðir. Frábær aðstaða til útiveru og íþróttaiðkunar. Góðir golfvellir á svæðinu.Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafærðingur, [email protected]. GSM 777 4277.
Nánari lýsing:Um er að ræða nýbyggð lítil fjölbýlishús með vel hönnuðum íbúðum. Hægt er að velja íbúðir með einu, tveimur eða þremur svefnherbergjum og einu eða tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð, með sér garði, miðhæð, með stórum svölum eða á efstu hæð og þá með svölum og stórum einka þaksvölum. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sundlaug, göngustígum og góðri leikaðstöðu fyrir börn. Örstutt á strönd, verslanir og veitingastaði.
Bílastæði fylgja.
Hægt er að fá íbúðirnar fullbúnar fallegum húsgögnum gegn aukagjaldi.Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu göngufæri. Þar eru fallegar gönguleiðir, hjóla- og hlaupastígar. Á svæðinu er lagt mikið upp úr góðri aðstöðu til útiveru og íþróttaiðkunar. Einnig er í boði fjölbreytt afþreying, spænskukennsla ofl.
Tveir góðir golfvellir eru á svæðinu, Aguilón í ca. 10 mín akstursfjarlægð, og Desert Springs í ca. 30 mín akstursfjarlægð. Skemmtilegir strandbæir í næsta nágrenni.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað og á góðu verði.
Verð miðað við gengi 1 Evra=150 ISk.
2ja herbergja íbúð (eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi): frá 145.000 Evrum (ISK 21.700.000) + kostn.
3ja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi): frá 165.000 Evrum (ISK 24.700.000) + kostn.
3ja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 197.000 Evrum (ISK 29.500.000) + kostn.4ra herbergja íbúð (þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 235.000 Evrum (ISK 35.200.000) + kostn.
Íbúðirnar eru tilbúnar strax.
Eitt besta loftslag í Evrópu.
.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.isKostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
MAR DE PULPI:
Spennandi nýr staður fyrir fólk sem stundar útivist, íþróttir, sólböð og golf. Örstutt göngufæri á fallega og ósnortna strönd, Los Nardos Beach, þar sem hægt er að njóta hlýrra sólargeisla og ganga um græna og fallega garða. Góð leikaðstaða fyrir börn, notalegir veitingastaðir og ölduniður.
Verslunar og veitingahúsakjarni er með úrvali veitingastaða og verslana, og einnig er örstutt í næstu litlu strandbæi þar sem er enn meira úrval af góðum veitingastöðum og skemmtilegum verslunum. Góðir golfvellir og fjölbreytt aðstaða til íþróttaiðkunar. Göngu og hjólastígar og margt fleira sem gerir dvölina ánægjulega. Í boði eru ýmsar skipulagðar ferðir um næsta nágrenni og svo auðvitað spænskukennsla. Sem sagt eitthvað spennandi fyrir alla.Eiginleikar: Ný eign, strönd, sameiginlegur sundlaugargarður, sér garður, þakverönd,
Svæði, Almeria, Mar de Pulpi,