SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
GLÆSILEG LÚXUSVILLA Á FRÁBÆRUM GOLFVELLI
Glæsileg og vel hönnuð ný einbýlishús á einni hæð. Örstutt göngufæri í glæsilegt klúbbhúsið á Las Colinas golfvellinum, æfingasvæðið og fyrsta teig. Stór einkagarður með einkasundlaug. Las Colinas golfvallasvæðið hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Frábær staðsetning alveg við golfvöllinn. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Las Colinas svæðinu verður best lýst með orðunum "A World Apart"
Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, GSM 777 4277. [email protected]GOTT SKIPULAG, rúmgóð svefnherbergis svíta með sérbaðherbergi og fataherbergi og auk þess tvö svefnherbergi til viðbótar, baðherbergi og gestasnyrting. Rúmgóð og björt stofa, eldhús opið við borðstofu, allt á einni hæð. Góð verönd framan við húsið og stór sér garður með einkasundlaug og sólbaðsaðstöðu fylgir.
Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð og sundlaugargarður er inni á svæðinu. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Gott bílastæði við húsið.
Örstutt göngufæri í Las Colinas klúbbhúsið, þar sem eru glæsilegir veitingastaðir og fallegt umhverfi.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, Las Ramblas, Campoamor og Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum í fallegu umhverfi.
Verð, gengi 1 Evra=150ISK.
1.100.000 evrur + kostn. (165.000.000ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn við kaupin.
AÐEINS EITT HÚS Í BOÐI, TIL AFHENDINGAR STRAX.
EIN BESTA STAÐSETNINGIN Á LAS COLINAS GOLF SVÆÐINUSKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá traustum og öruggum byggingaraðila.Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum, ljósum og rafmagnstækjum gegn aukagjaldi.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
http://www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.
Eiginleikar: golf, sér garður, einkasundlaug, air con, bílastæði, BBQ,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,