SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT RAÐHÚS Á FRÁBÆRUM STAÐ VIÐ LA FINCA GOLFVÖLLINN*
Vel staðsett og fallegt, vel skipulagt nýtt raðhús á tveimur hæðum á frábærum stað við hinn glæsilega La Finca golfvöll, í stuttu göngufæri frá klúbbhúsinu og 1. teig. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, verönd framan og aftan við húsið og auk þess góðar þaksvalir út frá svefnherbergi á efri hæð.
Aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði með góðri sólbaðsaðstöðu. Sér bílastæði inni á lokaðri lóð. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Gott skipulag og frábært verð.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]Nánari lýsing:Komið er inn í gott alrými og skiptist það í gott eldhús og stofu/borðstofu með góðu aðgengi að útisvæði, bæði verönd framan við húsið og aftan við húsið. Tvö svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð er hjónasvíta með sér baðherbergi og útgengi út á rúmgóðar þaksvalir.
Sérlega vel staðsett og falleg eign. Aðeins eitt hús eftir óselt.
Aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði.
Fallegt umhverfi.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við nýja og flotta klúbbhúsið á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem gæðaveitingastaðir, vínsmökkun og verslanir. Stutt í verslunar og þjónustukjarna á La Finca, og svo einnig í skemmtilega litla spænska bæji eins og Ciudad Quesada og Algorfa. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf, La Marquesa og fleiri.
Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard.
Frábær eign á góðu verði fyrir kröfuharða golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK):
Verð 295.000 Evrur (44.200.000 ISK) + 10% skattur og ca. ca. 3% kostn. við kaupin.
Íbúðin er 90 fm.
Verönd 31 fm.
Þakverönd 36 fm.
Einkagarður 83 fm
Samtals 240 sérafnotarými
Auk þess aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði og sér bílastæði inni á lokaðri lóð.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka til að auðvelda kaupin.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.
Eiginleikar: sér garður, þakverönd, sundlaugargarður, air con, golf, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,