SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLAMENCA VILLAGE, EIN BESTA STAÐSETNINGIN Á COSTA BLANCA"
"DÁSAMLEGT ÞORP VIÐ MIÐJARÐARHAFIÐ"
Lokað svæði, gróið og fallegt umhverfi, göngustígar, hlaupabrautir, sundlaugar, barnalaugar, líkamsræktraraðstaða, kaffihús/bar og ótal margt fleira sem gerir þetta án efa að flottasta íbúðahverfinu á Costa Blanca svæðinu.
Glænýjar og vandaðar 3ja og 4ra herb. íbúðir á frábærum stað á Playa Flamenca, stutt frá Villamartin, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín göngufæri á Playa Flamenca ströndina, 10 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, flottu verslunarmiðstöðina og aðeins 5 mín. rölt á vinsæla laugardagsmarkaðinn í Playa Flamenca. Mercadona og úrval fleiri verslana og veitingastaða örstutt frá. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi.
Aðeins örfáar íbúðir eftir í 4. og síðasta áfanga.
TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495.
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.Nánari lýsing:
Um er að ræða nýbyggð lyftuhús með 3ja og 4ra herb. vel hönnuðum íbúðum. Íbúðirnar eru með tveimur eða þremur svefnherbergjum og einu eða tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Þvottahús og geymsla innan íbúðar. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð með sér garði, miðhæðum með góðum svölum eða á efstu hæð og þá með góðum svölum og stórum einkaþaksvölum. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sundlaug, heitum pottum og líkamsræktaraðstöðu, kaffihúsi/bar ofl. Góð leikaðstaða fyrir börnin. Frábært útsýni m.a. til sjávar.
Stæði í bílakjallara.
Einnig fylgir geymsla í kjallara flestum íbúðunum.
Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í örstuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. La Zenia, Playa Flamenca og La Zenia Boulevard, vinsælustu verslunarmiðstöðina á svæðinu, veitingastaðir og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á þessum vinsæla stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Mögulegt er að fá íbúðina afhenta fullbúna húsgögnum og húsbúnaði gegn aukagjaldi. Þá er allt sett upp og hægt að flytja beint inn og byrja að njóta frá fyrsta degi.
Verð miðað við gengi 1Evra=150 ISK
4ra herbergja íbúð (þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 462.000 Evrum (ISK. 69.300.000) + kostn. við kaupin
Á sama stað er einnig hægt að velja 3ja herb. íbúðir, þe. íbúð með 2 svefnh. + 1 eða 2 baðh.Verð frá 340.000 Evrur (ISK 51.000.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin .
Allar íbúðir í Flamenca Village eru til búnar til afhendingar við kaupsamning.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við aðstoðum okkar viðskiptavini við greiðslumatið.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: bílakjallari, sundlaugargarður, air con, sér garður, þakverönd, nálægt strönd, lyfta,
Svæði: Costa Blanca, Playa Flamenca,