Spánareignir - Pilar De La Horadada SPÁNN

72.700.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    182 m2

  • Bílskúr

    Með bílskúr

Tilvísunarnúmer:

725584

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS MEÐ BÍLAKJALLARA. GÓÐ STAÐSETNING*

Falleg einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílakjallara  á frábærum stað í Pilar de la Horadada, snyrtilegum  bæ, ca. klst. akstur í suður frá Alicante. Sér garður og einkasundlaug. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi + gestasnyrting, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Stæði í bílakjallara ásamt sér geymslu. 
Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Lo Romero, Roda golf, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Stutt göngufæri í verslanir og veitingastaði. Stutt á fallega strönd.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. [email protected]. GSM 777 4277.

Skipulag:

Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa, borðstofa og opið eldhús við borðstofu. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta.  Svefnherbergi með sér baðherbergi. Gestasnyrting. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og baðherbergi og útgengi út á góðar svalir. Þakverönd. Kjallari þar sem hægt er að vera með bílageymslu, tómstundarými eða annað.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 

Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK.
Verð frá 485.000 Evrum (ISK 72.700.000) + 10% skattur og ca. 3%  kostn. við kaupin

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: einkasundlaug, þakverönd, sér garður, air con, ný eign, bílskúr, geymsla
Svæði: Costa Blanca, Pilar de la Horadada,
 

Kort af svæðinu