Spánareignir - Las Colinas Golf SPÁNN

131.200.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á einni hæð

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    152 m2

  • Bílskúr

    Með bílskúr

Tilvísunarnúmer:

713395

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM GOLFVELLI*

Glæsilegt og vel hannað nýtt  einbýlishús á einni hæð ásamt kjallara og sólarverönd. Stór einkagarður með einkasundlaug á Las Colinas golfvallasvæðinu, sem hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. GOTT SKIPULAG,  þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi + gestasnyrting, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Góð verönd  framan við húsið og  stór sér garður með einkasundlaug og sólbaðsaðstöðu fylgir. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.

Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]

Nánari lýsing:

Rúmgóð og björt stofa/borðstofa  og eldhús í opnu og björtu rými. Svefnherbergi með sérbaðherbergi. Tvö svefnherbergi til viðbótar og annað baðherbergi og auk þess gestasnyrting.
Frá aðalrými er útgengi út á stóra verönd með einkasundlaug og frábærri aðstöðu til að grilla og njóta lífsins í sólinni.
Í kjallara er hægt að vera með bílskúr fyrir tvo bíla, og auk þess er þar stórt óinnréttað rými sem hægt er að nýta á ýmsan máta.
Stór þakverönd.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Glæsileg þjónustumiðstöð er í byggingu inni á svæðinu. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK)  875.000 evrur (131.200.000 ISK),  + 10% skattur og ca. 3% kostnaður við kaupin.
Húsið er í byggingu og getur kaupandi því ráðið lokafrágangi ef hann vill.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá  traustum og öruggum byggingaraðila.

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og húsbúnaði gegn aukagjaldi.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, þakverönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
 

Kort af svæðinu