SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR Í LITLUM FJÖLBÝLISHÚSUM, TILBÚNAR TIL AFHENDINGAR STRAX.*
Bjartar og vel hannaðar nýjar íbúðir í litlum fjölbýlishúsum á frábærum stað í Pilar de la Horadada, snyrtilegum bæ, ca. klst. akstur í suður frá Alicante. Hægt er að velja íbúðir á neðstu hæð með sér garði, íbúðir á miðhæð með góðum svölum og íbúðir á efstu hæð með sér þakverönd. Lokaður garður með sundlaug, leiksvæði fyrir börnin og líkamsræktartækjum. Tvö eða þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Stæði í bílakjallara ásamt sér geymslu.
Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Lo Romero, Roda golf, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Stutt göngufæri í verslanir og veitingastaði. Stutt á fallega strönd.
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. [email protected]. GSM 777 4277.
Skipulag:Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa, borðstofa og opið eldhús við borðstofu. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta. Tvö eða þrjú svefnherbergi. Sér baðherbergi inn af einu svefnherberginni og auk þess annað baðherbergi.
Rafmagnstæki fylgja.
Gólfhiti á baðherbergjum.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Um er að ræða þrjár litlar blokkir. Ein blokkin er með þrjár hæðir, og þar er lyfta.
Íbúðum á neðstu hæð fylgir lítill sér garður við húsið þar sem hægt er að njóta sólarinnar.
Íbúðum á miðhæð fylgja góðar svalir.
Íbúðir á efstu hæð eru með góðum svölum og auk þess er stór sér þakverönd með frábærri sólbaðsaðstöðu.
Fallegur sameiginlegur lokaður sundlaugagarður með góðri aðstöðu og líkamsrækt.
Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK.
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi:
Íbúð á jarðhæð með verönd og sérgarði. Verð frá 249.900 Evrum (ISK 37.400.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin
Íbúð á miðhæð með svölum. ALLAR UPPSELDAR.
Íbúð á efstu hæð með svölum og sér þaksvölum. Verð frá 279.900 Evrum (ISK41.900.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin
Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. ALLAR UPPSELDAR.
Tilbúnar til afhendingar strax.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.is10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con, ný eign, bílastæði, geymsla
Svæði: Costa Blanca, Pilar de la Horadada,