Spánareignir - Vistabella Golf* SPÁNN

28.400.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Hæð

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    110 m2

Tilvísunarnúmer:

604135

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EFRI EÐA NEÐRI SÉRHÆÐ*

Fallegar og vel skipulagðar efri eða neðri sér hæðir í Vistabella, snyrtilegum, litlum bæ, ca. 40 mín akstur frá Alicante. Góð verönd eða svalir út frá stofu. Neðri hæðum fylgir sérgarður efri hæðum fylgir sér þakverönd.  Um 15-20 mín akstur á La Zenia ströndina. Örstutt á hinn fallega Vistabella 18 holu golfvöll og auk þess fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Lokað svæði, tryggir aukið öryggi. Örstutt labb í verslanir og veitingastaði, Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum. 
Íbúðirnar eru vel skipulagðar með góðu alrými, tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. 

FRÁBÆRT VERÐ

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,[email protected]. GSM 893 2495 OG
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur,   karl@spanareignir. GSM 777 4277


Nánari lýsing:
Íbúðirnar skiptast í gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og góðum skápum. Eitt svefnherbergi til viðbótar + auka baðherbergi.
Út frá stofunni á neðri hæð er góð verönd og lítill sér garður, en á efri hæð eru svalir og stórar einka þaksvalir. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni. Frábært verð og góð fjárfesting. Mikil uppbygging er á svæðinu og er þetta því góð framtíðarfjárfesting.

Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK.
2 svefnherbergi + 2 baðherbergi, 66-83 fm.:
Neðri sér hæð með sér garði. Verð frá 189.900 Evrur. (ISK 28.400.000) + kostn. við kaupin.
Efri sér hæð með sér þaksvölum. Verð frá 209.900 Evrur (ISK 31.400.000) + kostn. við kaupin.

AÐEINS ÖRFÁAR ÍBÚÐIR EFTIR Í ÞESSUM ÁFANGA.


Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar í desember 2024.
Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótarkostnaði. þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.

Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
FASTEIGN Á SPÁNI - LJÚFUR LÍFSSTÍLL


Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

Eiginleikar: golf, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, ný eign, bílastæði, lokað svæði,
Svæði: Costa Blanca, Vistabella,

Kort af svæðinu