Spánareignir - Las Colinas Golf SPÁNN

134.200.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á einni hæð

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    200 m2

  • Bílskúr

    Með bílskúr

Tilvísunarnúmer:

601295

REIKNA ÚT LÁN

*GLÆSILEG LÚXUSVILLA Á FRÁBÆRUM GOLFVELLI*-*BÍLSKÚR FYRIR TVO BÍLA*
Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali
GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, 
GSM 777 4277. [email protected]


Glæsilegt og vel hannað nýlegt  200fm. einbýlishús á einni hæð. Lokaður bílskúr fyrir tvo bíla. Eign á stórri lóð á góðum stað með golfútsýni á Las Colinas golfvallasvæðinu, sem hefur verið valið eitt besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Stór einkagarður með einkasundlaug, flottum veröndum og frábærri aðstöðu til útiveru og góðri grill aðstöðu.

Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og gestasnyrting, björt og góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Góð tenging við garðinn, stóra verönd með frábærri aðstöðu.  Vönduð húsgögn og húsbúnaður getur fylgt ásamt fallegum útihúsgögnum.  Sannarlega lúxuseign með öllu fyrir kröfuharða. Gott fjölskylduhús þar sem vel fer um alla og hægt að flytja beint inn. Aðalhæð hússins er 140 fm. og 60fm kjallari, þar sem er bílskúr fyrir 2 bíla.

Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð á svæðinu og auk þess tennis- og körfuboltavellir. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Fleiri góðir golfvellir eru í næsta nágrenni við Las Colinas golfvöllinn, t.d.   La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella, Lo Romero og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb.
Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.
Húsið er sérlega vel skipulagt og gott flæði í því.

Verð 895.000 evrur  + kostn. (ISK 134.200.00.000 + kostn. miðað við gengi 1Evra=150Ikr.)
TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR STRAX.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir. 

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.


Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, lokaður bílskúr, golf,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

Kort af svæðinu