Spánareignir - La Zenia Ströndin SPÁNN

193.500.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    5

  • Fjöldi svefnherbergja

    4

  • Fermetrastærð

    300 m2

Tilvísunarnúmer:

546681

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*STÓRT OG GLÆSILEGT NÝLEGT EINBÝLISHÚS Á LA ZENIA STRÖNDINNI*

Stórt og glæsilegt einbýlishús í nútímalegum stíl, á tveimur hæðum með stórum lokuðum garði,  einkasundlaug, jacuzzi, garðhúsi með bar og flottri grillaðstöðu, aðeins nokkur skref niður á hina vinsælu La Zenia strönd. Stutt í góða veitingastaði verslanir og þjónustu. Um 30 mín akstur suður af Alicante. Fjögur svefnherbergi öll með sér baðherbergjum og auk þess gestabaðherbergi. Stór stofa með skrifstofuaðstöðu inn af, rúmgóð borðstofa, í góðri tengingu við stórt eldhús með glæsilegri nútímalegri innréttingu, marmara og öllum þægindum. Gott aðgengi út í garðinn frá stofu með góðu útsýni yfir sundlaugina og sundlaugarsvæðið. Sérstætt garðhús með útibar. Sundlaugin er 10 metra löng og upphituð. Einnig er notalegt jacuzzi og frábær sólbaðsaðstaða. Stór þakverönd með frábærri aðstöðu, td. útibíó og líkamsræktaraðstöðu og útsýni til sjávar. Algjört lúxushús.


Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277


Húsið er um 300 fm. og lóðin um 650 fm. Sonos tónlistarkerfi, öryggiskerfi og gólfhiti. Húsið er í rólegri götu, rétt við ströndina, einstök staðsetning enda örsjaldan sem svona hús koma í sölu.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas ofl. Stutt í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina.

Gott úrval verslana og veitingastaða er í göngufæri.

Hér er um að ræða algjöra lúxuseign fyrir fólk sem gerir kröfur og kann að njóta lífsins.

Ásett verð 1.290.000 Evrur + kostn. eða 193.500.000 ISK (gengi 1Evra=150 ISK)

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á hagstæðum kjörum.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

Eiginleikar: þakverönd, útsýni, sér garður, einkasundlaug, air con, BBQ, líkamsræktaraðstaða, strönd, endursölueign, 
Svæði: Costa Blanca, La Zenia,
 

Kort af svæðinu