Spánareignir - Ciudad Quesada SPÁNN

73.700.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á einni hæð

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    148 m2

Tilvísunarnúmer:

541896

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEG EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Í CIUDAD QUESADA*-*FRÁBÆRT SKIPULAG OG STÓR LÓÐ*

Vandað og fallegt einbýlishús á einni hæð í notalegum spænskum bæ. Um 30 mín akstur suður af Alicante. Húsið er á einni hæð, vel skipulagt með góðu alrými, þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Sér garður með einkasundlaug. Stór þakverönd með útsýni. Sér bílastæði inni á lokaðri lóð. Göngufæri í úrval verslana og veitingastaða. Stutt á La Marquesa golfvöllinn.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, gsm 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, gsm 777 4277, [email protected].

Nánari lýsing:

Húsið skiptist í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými.
Þrjú  svefnherbergi og tvö baðherbergi.

Út frá stofunni er stór verönd og stór, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug í garðinum.

Mikið innifalið:
Fullfrágenginn garður með einkasundlaug.
Rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.
Hiti í gólfum á baðherbergjum.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstakar eignir og staðsetningu að ræða. Aðeins örfá hús i boði.
Verð frá 491.600 evrum + kostn. (73.700.000 ISK, gengi 1 evra=150 ISK)

Hægt er að kaupa sýningarhúsið, fullbúið glæsilegum húsgögnum og ýmsum aukabúnaði á 491.600 Evur (ISK 73.400.000, gengi 1 evra=150 ISK)

Húsið er vel staðsett í göngufæri við aðalgötuna í Ciudad Quesada, þar sem er úrval verslana og veitingastaða, heilsugæsla ofl. Stutt á La Marquesa golfvöllinn og einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Roda Golf,  

Ca. 10 mín akstur er niður á Guardamar ströndina. Ca. 10-20 mín akstur verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia Boulevard. 

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður, allt að 60.000 ISK á mann fyrir tvo, eða samtals allt að 120.000ISK.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því verið ca. 13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, Ciudad Quesada,
 

Kort af svæðinu