Spánareignir - Vistabella Golf SPÁNN

50.600.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    140 m2

Tilvísunarnúmer:

751002

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á GOLFVELLI*

Falleg, rúmgóð og vel skipulögð  einbýlishús á tveimur hæðum í Vistabella, snyrtilegum, litlum bæ, ca. 40 mín akstur frá Alicante. Góð verönd út frá stofu, sérgarður þar sem hægt er að hafa einkasundlaug.   Um 15-20 mín akstur á La Zenia ströndina. Örstutt á hinn fallega Vistabella 18 holu golfvöll og auk þess fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Lokað svæði, tryggir aukið öryggi. Örstutt labb í verslanir og veitingastaði. Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum. Nýtt og glæsilegt klúbbhús er í byggingu á svæðinu.
Lokað svæði með öryggisgæslu 24/7.
Húsið  er vel skipulagt með góðu alrými, þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. 


GOTT VERÐ
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,[email protected]. GSM 893 2495 OG
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur,   karl@spanareignir. GSM 777 4277


Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými. Svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi út í garð.

Efri hæð: 
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Aðgengi út á svalir frá báðum svefnherbergjum. 

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar og grilla. Einkasundlaug. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.

Verð frá 349.000 Evrur + kostn. (ISK 50.600.000,  gengi 1E= 145 ISK)

Húsið er 109 fm.
verönd 31 fm.
samtals 140 fm.

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn aukagjaldi, þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.

Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

Eiginleikar: ný eign, sér garður, einkasundlaug, golf, bílastæði,
Svæði: Costa Blanca, Vistabella,
 

Kort af svæðinu