SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ OG FLOTT RAÐHÚS*-*FRÁBÆR STAÐSETNING Á LA FINCA GOLFVALLASVÆÐINU*
Flott raðhús á tveimur hæðum ásamt fullinnréttuðum rúmgóðum kjallara. Góður sér garður með einkasundlaug og góðri grillaðstöðu bætir verulega við notkunarrýmið. Vel skipulögð og rúmgóð, 3 svefnherbergi og 4 baðherbergi. Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Möguleiki á að innrétta fjórða svefnherbergið í kjallara, eða bara hafa opið gesta/tómstunda/vinnurými. Hægt er að útbúa séríbúð með sér inngangi í kjallaranum. Eign sem býður upp á mikla möguleika.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.Frábær staðsetning, fallegt umhverfi, örstutt frá hinum vinsæla La Finca golfvelli auk þess sem ótal fleiri golfvellir eru í næsta nágrenni.
Örstutt göngufæri í verslanir og veitingastaði.
Um 20-30 mín akstur frá flugvellinum í Alicante og ca. 15 mín akstur á fallega strönd.
Vel skipulögð og skemmtileg hús.
Á neðri hæð er rúmgóð og björt stofa og borðstofa vel tengd eldhúsi með vandaðri og fallegri innréttingu. Úr stofu er útgengi út á góða verönd sem er vel tengd sér garði með einkasundlaug og góðri grillaðstöðu. Rúmgott svefnherbergi með skápum. Baðherbergi.
Á efri hæðinni eru tvö góð svefnherbergi með skápum, bæði með sér baðherbergi. Svalir út frá báðum svefnherbergjunum.
Kjallarinn er rúmgóður með gluggum út í Patio, sem hleypir birtunni inn. Kjallarinn er fullinnréttað opið rými með baðherbergi og sturtu, þannig að hægt er að nýta hann á ýmsa vegu og jafnvel bæta við fjórða svefnherberginu. Innangengt er í kjallarann frá efri hæð, og líka sérinngangur beins frá lóð.
Bílastæði inni á lokaðri lóð.
Rafmagnshlið með fjarstýringu.
Sundlaug með hitunarpumpu og lýsingu.
Útisturta.
Hér er um að ræða rúmgóð og glæsileg raðhús á frábærum og fjölskylduvænum stað. Góð kaup miðað við stærð, staðsetningu og frágang.Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Um 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum.
Ca 15 mín akstur á ströndina, þar sem eru ótal skemmtilegir veitingastaðir, falleg sandströnd, skemmtilegt strandlíf og göngustígar meðfram allri ströndinni.
Verð frá 350.000 Evrur + kostn. eða ISK 50.700.000,- (gengi 1Evra=145 ISK)
Afhendingartími: ágúst 2024.Fullbúið og glæsilegt sýningarhús á staðnum.
Á sama stað er líka hægt að fá rúmgóð og falleg einbýlishús. Verð frá 515.000 evrur + kostn. eða ISK 74.600.000 (gengi 1EVRA=145ISK)
og endaraðhús frá 420.000 Evrum (ISK 60.900.000)+ kostn.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.
Eignileikar: sér garður, einkasundlaug, bílastæði, air con, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,