SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*NÝLEG LÚXUS ENDAÍBÚÐ Á FLOTTUM GOLFVELLI*-*FRÁBÆRT ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLL OG TIL SJÁVAR*
Glæsileg og vel hönnuð nýleg íbúð Í lyftuhúsi á Las Colinas golfsvæðinu. Íbúðin er á 2. hæð og með einstöku útsýni yfir golfvöllinn og til sjávar. Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
Sérlega rúmgóð íbúð með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Stór stofa, opið eldhús með flott hannaðri innréttingu. Útgengi út á stórar svalir bæði frá stofunni og frá eldhúsinu/borðstofunni. Einnig er útgengi út á suðursvalir frá hjónasvítu. Sér stæði í bílakjallara og rúmgóð geymsla við stæðið. Mjög þægilegt fyrir golfara. Það er bara allt flott við þessa íbúð, enda hefur hún vakið athygli fyrir hönnun innréttinga, glæsileika og frágang. Sérstaka athygli vekur lýsingin í loftum, enda vel útfærð og skapar hlýlega og fallega stemmingu í íbúðinni.
Það er okkur hjá Spánareignum sannur heiður að fá að selja þessa fallegu eign.
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected], Karl Bernburg, viðskiptafærðingur og söluráðgjafi. GSM 777 4277, [email protected] og Berta Hawkins, viðskiptafræðingur og söluráðgjafi, GSM 0034 615 112 869.Lýsing:
Íbúðin skiptist í rúmgóða stofu með útgengi út á stórar svalir með einstöku útsýni yfir golfvöllin og til sjávar. Aðrar svalir í suður með útsýni yfir fallega gróið svæði og útgengi frá eldhúsi/borðstofu. Svefnherbergin er þrjú og baðherbergin tvö. Gólfhiti í baðherbergjum. Hjónasvítan er sérlega glæsileg með sér baðherbergi og fataherbergi og útgengi út á svalir til suðurs. Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður, inni og útisundlaug, spa og líkamsræktaraðstaða. Bílastæði og geymsla í lokuðum bílakjallara. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Hér er um að ræða sérlega vandaða og fallega útsýnisíbúð á einum besta staðnum á Las Colinas svæðinu.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Íbúðin afhendist með öllum rafmagnstækjum, þvottavél og ísskáp og húsgögnum eftir samkomulagi.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.
Allt að 2-3 ára biðtími er eftir góðum íbúðum á Las Colinassvæðinu. Hér gefst því gott tækifæri til að eignast sérlega vandaða og fallega glæsieign til afhendingar strax.
Verð miðað við gengi 1Evra=143ISK.
Íbúð: 3 svefnherbergi + 2 baðherb., ásamt tvennum góðum svölum, stæði í bílakjallara og geymslu: 798.000 Evrur ( ISK 114.100.000)
Ofan á öll verð leggst 10% skattur og ca.3% kostnaður vegna kaupa, eða samtals 13%.
Hægt er að bóka einkafund með okkur og fara yfir málin, kaupferlið ofl.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca.3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: útsýni, golf, lyfta, bílakjallari, geymsla, air con,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,