SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR PENTHOUSEÍBÚÐIR - GRÆNT OG FALLEGT UMHVERFI*- * STUTT Í VERSLANIR OG Á STRÖND* Vandaðar og fallegar penthouse íbúðir á frábærum stað á Punta Prima svæðinu, stutt frá La Zenia Boulevard, Torrevieja og Punta Prima ströndinni, ca. 40 mín akstur í suður frá Alicante flugvelli. Ca. 15-20 mín göngufæri á fallega strönd og 15-20 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, vinsælu verslunarmiðstöðina. Örstutt göngufæri í verslanir, veitingastaði og þjónustu. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð í frábæru umhverfi, þar sem tilfinningin er paradísin á Bali. Líkamsrækt, heitir pottar og sauna. Glæsilegur sameiginlegur sundlaugargarður.
Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, stórar svalir og einkaþaksvalir.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.
Nánari lýsing:Um er að ræða glæsilegar 4ra herb.penthouse íbúðir í vönduðum og fallegum litlum fjölbýlishúsum. Öll hönnun og útlit tekur mið af paradísinni Bali, grænt og fallegt umhverfi í vel hönnuðum sundlaugargarði, þar sem gert er ráð fyrir leiksvæði fyrir börnin, slökun og hvíld, líkamsrækt og endurnæringu líkama og sálar.
Íbúðirnar eru með þremur svefnherbergjum þe. rúmgóðu hjónaherbergi með sér baðherbergi og tveimur öðrum góðum svefnherbergjum og baðherbergi. Góð stofa/alrými og fallegt eldhús. Stórar svalir og sér þaksvalir. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Hiti í gólfum á baðherbergjum.
Rafdrifnar gardínur í stofu og svefnherbergjum, sturtugler og speglar fylgja.
Sér geymsla og stæði í bílakjallara.
Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum og húsbúnaði gegn aukagjaldi.
Glæsileg sameign með fallegum sameiginlegum sundlaugargarði, heitum pottum, sundlaugum, útisturtum, líkamsrækt, gufu og góðu leiksvæði fyrir börnin. Við útlitshönnun er tekið mið af balísku landsslagi sem gefur tilfinninguna fyrir að algjöra slökun frá umheiminum.Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufær. á Punta Prima svæðinu. La Zenia Boulevard, glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða og fjölbreyttrar afþreyingar er í ca. 5 mín. akstursfjarlægð. Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 10 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða penthouse íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Verð:
4ra herbergja íbúð (þrjú svefnherbergi) og tvö baðherbergi: frá 559.000 Evrur + kostn.(ISK. 83.800.000 gengi 1Evra=140 ISK)
íbúðin er ca. 86 fm. + 33 fm. svalir + 90 fm. sér þaksvalir, eða samtals ca. 209 fm. sérafnotarými.
Til afhendingar október 2023.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
http://www.spanareignir.isEitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: strönd, útsýni, sameiginlegur sundlaugargarður, bílakjallari, ný eign, þaksvalir,
Svæði: Costa Blanca, Punta Prima,