Spánareignir - Busot - Alicante SPÁNN

37.900.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    139 m2

Tilvísunarnúmer:

623508

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*ÓDÝRT - GLÆSILEG NÝ EINBÝLISHÚS Í EKTA SPÆNSKUM BÆ RÉTT HJÁ ALICANTE* - *STUTT Í GOLF*

Sérlega vönduð og falleg, rúmgóð og vel skipulögð  einbýlishús á tveimur hæðum í fallegum spænskum bæ, stutt frá Alicante. Góð verönd út frá stofu, sérgarður og aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði. Um 20 mín akstur frá Alicante, 10 mín akstur niður á ströndina í El Campello og 10 mín akstur á hinn fallega og vinsæla Bonalba golfvöll. Fallegar göngu-og hjólaleiðir í nágrenninu.  Húsin  eru vel skipulagt með góðu alrými, þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Sér garði og bílastæði.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,[email protected]. GSM 893 2495 OG
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur,   karl@spanareignir. GSM 777 4277

Nánari lýsing:

Húsið skiptist í gott eldhús, með góðri tengingu við stofu/boðrstofu í rúmgóðu alrými. Þvottahús inn af eldhúsi.
Tvö svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð er annað svefnherbergi og baðherbergi. 
Á sama stað er líka hægt að fá einbýlishús með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla. Aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarðiog grænu svæði til að njóta  útiveru í góðu veðri allt árið um kring.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Bein kaup frá traustum byggingaraðila.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufæri á bæjartorgið í Busot, sem er einstaklega vinalegur og fallegur lítill spænskur bær stutt frá Alicante. Stutt er að keyra á Bonalba golvöllinn og niður á El Campello ströndina. Algjör ú5tivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni. Skóli og góð aðstaða fyrir börn í næsta nágrenni.

Verð miðað við gengi 1Evra=150 ISK)
Einbýlishús með 3 svefnh. + 2 baðh. verð frá 253.000 Evrur (ISK 37.900.000) + ca. 13% kostnaður við kaupin.

Á sama stað eru líka hús með 2 svefnh. + 2 baðh. frá 196.000 Evrur. (ISK 29.400.000) + ca. 13% kostnaður við kaupin.

Húsin eru tilbúin til afhendingar í maí - september 2024.

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum á hagstæðum kjörum,  þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

Eiginleikar: sameiginlegur sundlaugargarður, sér garður, air con, bílastæði, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Busot, Alicante, Los Altos de Alicante,

Kort af svæðinu