*RAÐHÚS VIÐ GOLFVÖLL* – *GÓÐ STAÐSETNING*
Rúmgott og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum með suður verönd og þaksvölum á hinu vinsæla Las Ramblas golfsvæði, um 50 mín akstur suður af Alicante. Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa/borðstofa í opnu rými, vel útbúið eldhús. Þvottahús/geymsla inn af eldhúsi. Góð suður verönd út frá stofu og einnig bakverönd. Stór þakverönd, sem auðvelt væri að loka að hluta og bæta þannig við þriðja svefnherberginu og þriðja baðherberginu. Sameiginlegur sundlaugargarður, sérmerkt bílastæði. Örstutt göngufæri í Las Ramblas klúbbhúsið, æfingasvæðið og fyrsta teig. Algjör golfparadís.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected],
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur og söluráðgjafi. GSM 777 4277. [email protected] og Berta Hawkins, viðskiptafræðingur og söluráðgjafi, [email protected]. GSM 0034 615 112 869Nánari lýsing.Vel utbúið eldhús og stofa/borðstofa í opnu rými með góðu flæði. Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Góð verönd út frá stofu. Lítill lokaður bakgarður.
Stór þakverönd, yfirbyggð að hluta og væri auðvelt að bæta þar við auka gestasvítu með sér baðherbergi, eða innrétta sem vinnuaðstöðu. Geymsla.
Loftkæling/hiti og ofnakerfi. Öryggiskerfi.
Húsgögn og húsbúnaður fylgir eftir samkomulagi.
SNYRTILEG OG RÚMGÓÐ EIGN Á GÓÐUM STAÐ SEM MEÐ SMÁNOSTRI GÆTI ORÐIÐ FALLEG DRAUMAEIGN GOLFFJÖLSKYLDUNNAR.Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður fyrir framan húsið.
Raðhúsið er vel staðsett í örstuttu göngufæri frá klúbbhúsinu við Las Ramblas golfvöllinn. Göngufæri í La Fuente, þar sem er gott úrval góðra veitingastaða, verslana og þjónustu, matvöruverslana eins og Aldi og Mercadonna.
Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romero, Roda Golf, La Marquesa og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 5 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Verð: 163.000 Evrur + kostn. (ISK 24.400.000 gengi 1E=150 ISK)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni verið ca. 13%.
LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um æfina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættu, en geta líka valið auðveldari leiðir.
Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig.
Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.
Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa að koma strax aftur.
En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.Eiginleikar: golf, útsýni, sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, bílastæði, þakverönd, endursölueign,
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf,