Spánareignir -alhama Golf SPÁNN

23.000.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    77 m2

Tilvísunarnúmer:

622570

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR :
*NÝJAR ÍBÚÐIR Á GOLFVELLI*
Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. [email protected]. GSM 777 4277.


Bjartar og rúmgóðar, vel hannaðar  glænýjar íbúðir í lyftuhúsi. Hægt er að velja um íbúðir á jarðhæð með sér garði, miðhæðum með góðum svölum og svo íbúðir á efstu hæð með sér þakverönd. Sameiginlegur sundlaugargarður. Fallegt svæði  ca. 110 mín. akstur frá Alicante, 40 mín akstur frá nýja Corvera flugvellinum í Murcia, 10-15 mín akstur í smábæinn El Sladillo og 15-20 mín akstur til Alhama de Murcia, 30 mín akstur í fallega strandbæinn Puerto de Mazarrone og 45 mín akstur til Cartagena.
Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Góðar svalir/verönd út frá stofu.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Íbúðum á jarðhæð fylgir sér garður við húsið þar sem er gott pláss, t.d. til að borða úti og njóta sólarinnar.
Íbúðum á efstu hæð fylgir stór sér þakverönd með frábærri sólbaðsaðstöðu, skemmtilegri grillaðstöðu og góðu útsýni.
Íbúðir á miðhæðum eru með góðum svölum út frá stofu.

Fallegur sameiginlegur lokaður sundlaugagarður með góðri aðstöðu.

Verð miðað við gengi 1E=150 ISK.
Íbúð á jarðhæð með sérgarði frá 169.500 Evrur (ISK. 25.400.00.000) + kostn.
Íbúð á miðhæð með góðum svölum frá 153.500 Evrur (ISK. 23.000.000) + kostn.
Íbúð á efstu hæð með sér þakverönd frá  179.500,- Evrur (ISK. 26.900.000) + kostn.

Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Spánareignir hafa selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar http://www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

Eiginleikar: sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, þakverönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, Alhama Golf,

 

Kort af svæðinu