Spánareignir - Lomas De Cabo Roig SPÁNN

114.000.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    151 m2

Tilvísunarnúmer:

618091

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEG EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM STAÐ*

Stórglæsileg einbýlishús á tveimur hæðum, rúmgóð og svalir út frá svefnherbergi á efri hæð, sem bæta verulega við notkunarrýmið. Glæsilegt útsýni. 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi, möguleiki á að bæta við fjórða svefnherberginu. Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Sérgarður með sérsundlaug og góðri grill aðstöðu.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.

Frábær staðsetning í göngufæri frá  ótal verslunum og veitingastöðum. Fjölmargir golfvellir í næsta nágrenni. Stutt á fallega strönd.


Um 50 mín akstur frá flugvellinum í Alicante.

Nánari lýsing:
Einbýlishúsin eru sérlega vel hönnuð og falleg. Á neðri hæð er rúmgóð og björt stofa og borðstofa vel tengd eldhúsi með vandaðri og fallegri innréttingu. Úr stofu er útgengi út á góða verönd sem er vel tengd sér garði með einkasundlaug og góðri grillaðstöðu. Tvö svefnherbergi með skápum og tvö baðherbergi.
Gengið er upp stiga og á efri hæðinni er rúmgott svefnherbergi og sérbaðherbergi. Svalir út frá svefnherbergjum með einstöku útsýni til sjávar.

Bílastæði inni á lóð fylgir.
Hér er um að ræða fallegt einbýlishús á frábærum og fjölskylduvænum stað.
Einstaklega vel staðsett á Costa Blanca ströndinni.

Stutt er á ströndina, þar sem eru ótal skemmtilegir veitingastaðir, falleg sandströnd, skemmtilegt strandlíf og göngustígar meðfram allri ströndinni.
Stutt í vinsælu verslunar- og afþreyingarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Þar eru ótal vinsælar verslanir, t.d. H&M, Zara, Primark ofl. Einnig fjölmargir góðir veitingastaðir og kaffihús.  Stórt torg þar sem hægt er að horfa á íþróttaviðburði á stórum sjónvarpsskjá, baða sig í gosbrunnum, læra að dansa og hlusta á tónlist.

Einnig er örstutt göngufæri í Lomas de Cabo Roig þjónustukjarnann, sem nýlega var opnaður og býður upp á góða veitingastaði, verslanir og þjónustu.

Húsin eru í byggingu og hægt að velja innréttingar og lokafrágang.
Verð frá 760.000 Evrum + kostn. eða ISK. 114.000.000,- (gengi 1Evra=150 ISK.)

Innifalið í verði er fullbúið eldhús með rafmagnstækjum, aircon og lýsing.
Hægt að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, einkasundlaug, þakverönd, sér garður, air con, 
Svæði: Costa Blanca, Cabo Roig,

Kort af svæðinu