Spánareignir - Villamartin SPÁNN

41.200.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Parhús / Parhús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    84 m2

Tilvísunarnúmer:

616595

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
 *GLÆSILEG PARHÚS*- *SÉRGARÐUR OG SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR*

Glæsileg ný parhús á tveimur hæðum á góðum stað á hinu vinsæla Villamartin svæði. Sér garður aðgangur að sameiginlegum sundlaugargarði. Sér bílastæði. Göngufæri í  verslanir og veitingastaði.  ca. 40 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín akstur á fallega strönd og 10 mín. akstursleið í La Zenia Boulevard verslanamiðstöðina. Göngufæri í Villamartin Plaza veitingahúsakjarnann. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast góða eign á fínu verði í frábæru umhverfi. Ótal góðir golfvellir í næsta nágrenni.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.

Nánari lýsing:

Um er að ræða vel skipulagðar 3ja herb. eignir á tveimur hæðum. Á neðri hæð er stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt eldhúsi.  Einnig er svefnherbergi og baðherbergi á neðri hæðinni. Á efri hæð er svefnherbergi ásamt baðherbergi. Útgengi er út á svalir frá öðru svefnherberginu.
Góður lokaður sér garður og auk þess er aðgangur að snyrtilegum sameiginlegum sundlaugargarði.  

Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í  stuttu akstursfæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast góða nýja eign á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.

Verð: 275.000 Evrur + kostn. (ISK. 41.200.000 gengi 1Evra/150ISK)

Á sama stað er einnig hægt að fá falleg einbýlishús með sér garði og einkasundlaug og auk þess aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði. 

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður, allt að ISK 60.000 á mann fyrir tvo, eða samtals allt að ISK.120.000.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkarhttp://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Eiginleikar:  sundlaugargarður, air con, sér garður, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,

Kort af svæðinu