Spánareignir - La Finca Golf SPÁNN

52.600.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Parhús / Parhús á einni hæð

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    107 m2

Tilvísunarnúmer:

609416

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG PARHÚS Á EINNI HÆÐ Á LA FINCA GOLFVELLINUM*

Sérlega vönduð og falleg, vel skipulögð og rúmgóð og ný parhús á einni hæð í stuttu göngufæri frá klúbbhúsinu við hinn glæsilega La Finca golfvöll. Góð sér lóð með einkasundlaug og aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Sérlega glæsileg hús með góðu alrými, þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.  Sér lóð með góðri verönd og einkasundlaug. Aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði.
Bílastæði inni á lokaðri lóð. Glæsilegt sýningarhús á staðnum, sem hægt er að skoða fullbúið húsgögnum.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]

Nánari lýsing:

Falleg aðkoma er að húsinu og skiptist það í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými. Rafmagnstæki fylgja í eldhúsi. Þvottahús inn af eldhúsi.
Hjónasvíta með sér baðherbergi. Auk þess tvö svefnherbergi til viðbótar á sérgangi og þar er annað baðherbergi. Gólfhiti á baðherbergjum.

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug og auk þess aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði.
Sér bílastæði inni á lokaðri lóð.
Fallegt umhverfi.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Aðeins örfá hús í boði.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við nýja og flotta klúbbhúsið á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem gæðaveitingastaðir, vínsmökkun og verslanir verður opnað á næstu mánuðum. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa og Ciudad Quesada.

Lúxuseign fyrir kröfuharða golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.

Verð frá 375.000 Evrur. (56.200.000ISK miðað við gengi 1E=150SK)
Aðeins eitt hús eftir, sem er sýningarhúsið sem er sérlega glæsilegt.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:http://www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, sundlaugargarður, air con, bílastæði,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,

Kort af svæðinu