SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*STÓRGLÆSILEG PENTHOUSE ÍBÚÐ Í FYRSTU LÍNU Á VINSÆLUM GOLFVELLI*
Glæsileg og vel hönnuð penthouseíbúð á Las Colinas golfsvæðinu með góðu útsýni yfir golfvöllinn og til sjávar. Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Rúmgóð, 173 fm. íbúð, 4 svefnherbergi og 3 baðherbergi, góð stofa,opið eldhús með vandaðri innréttingu. Stór verönd, 253 fm, samtals 426 fm sérafnotaflötur. 2 sér bílastæði í bílakjallara ásamt geymslu.
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]
Lýsing:Stórar svalir út frá stofu. Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Gott útsýni yfir fallega gróið umhverfi, golfvöllinn og til sjávar.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum. Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Loftkæling/hitun fylgir.
Auk þess rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf, stunda útiveru og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.
Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK:
Penthouse íbúð, 4 svefnh. + 3 baðh., verð 1.499.000 Evrur (224.800.000ISK) + kostn. við kaupin.Hægt er að fá íbúðina afhenta fullbúna húsgögnum gegn aukagjaldi.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca.3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,