Spánareignir - Los Montesinos SPÁNN

46.600.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    113 m2

Tilvísunarnúmer:

585598

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* – *GOTT VERÐ*


Falleg, rúmgóð og vel hönnuð einbýlishús  með lokuðum garði verönd út frá stofu, þakverönd og einkasundlaug í La Herrada/Los Montesinos, ekta spænskum bæ, um 30 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi + gestasnyrting, góð stofa, borðstofa og rúmgott eldhús.
Stórar svalir út frá svefnherbergi á efri hæð og auk þess möguleiki á þaksvölum.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]

Nánari lýsing:

Neðri hæð: Komið er inn í opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými . Eitt svefnherbergi með sér baðherbergi og auk þess gestasnyrting. Útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi, baðherbergi. Útgengi út á stórar svalir.
Stæði fyrir bíl inni á lokaðri lóð.
Einkasundlaug, sem tengist vel góðri verönd út frá stofu. Þar er gott pláss  t.d. til að borða úti eða njóta sólarinnar við sundlaugarbakkann.

Tilbúið til afhendingar í desember 2022 - desember 2023 eftir því hvaða hús er valið.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15-20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Los Montesinos er skemmtilegur ekta spænskur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi hefðbundnu spænsku bæjarlífi, Fiestum og ýmsu skemmtilegu, verslunum og veitingastöðum. Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Ca. 10 mín. akstur á tvo góða golfvelli, La Finca og La Marquesa, og ótal fleiri góðir golfvellir eru í innan við 20 mín akstursleið frá Los Montesinos.  Ciudad Quesada og Dona Pepa, eru stutt frá, vinsælir og líflegir bæir sem iða af mannlífi allt árið.
Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.

Verð frá:
Verð frá 332.900 evrum  + kostn. (ISK 46.600.000 + kostn. gengi 1Evra=140ISK.)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, þakverönd, air con, einkasundlaug, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Los Montesinos, La Herrada,

Kort af svæðinu