Spánareignir - Pilar De La Horadada SPÁNN

25.500.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með sérinngangi

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    76 m2

  • Bílskúr

    Með bílskúr

Tilvísunarnúmer:

564651

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR* *SÉR GARÐUR* *STUTT Á STRÖND*

Nýjar íbúðir á góðum stað í litlum íbúðarkjarna. Í boði eru íbúðir með 2 eða 3 svefnh. og 2 baðherbergi á jarðhæð með sér garði eða efri hæð með svölum og sér þakverönd.
 Efri hæðum fylgir sér bílskúr og neðri hæðum bílskýli. Frábært tækifæri til að eignast góða íbúð á góðu verði. Stutt á strönd og í skemmtilegan miðbæ Pilar de la Horadada. Um 45 mín akstur suður frá Alicante.


Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 477.


Nánari lýsing:
Gengið frá bílskýli inn sér inngang. Komið er inn í vel skipulagt alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með útgengi út í sér garð.
Hjónasvíta með sér baðherbergi, stórum fataskáp og útgengi út í garð.
Svefnherbergi með stórum  fataskáp við hliðinná baðherbergi.

Mikið innifalið:
Rafmagnstæki (ofn, helluborð, gufugleypir, ísskápur með frysti, uppþvottavél, þvottavél og örbylgjuofn).
Gólfhiti á baðherbergjum, fullbúin baðherbergi með sturtugleri og speglum.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Lýsing.
Sér garður.
Sameiginlegur sundlaugargarður.

Verð:
Neðri hæð með sér garði og bílskýli
(2 svefnherbergi + 2 baðherbergi): Verð frá frá 175.900. Evrur. + kostn. (25.500.000ISK miðað við gengi 1E=145ISK)
Efri hæð með svölum, sér þakverönd og bílskúr (2 svefnherbergi + 2 baðherbergi): Verð frá  204.900 Evrur. + kostn. (29.700.000ISK miðað við gengi 1E=145ISK)

Hægt að fá íbúðir tilbúnar í desember 2021 (aðeins tvær eftir + sýningaríbúðin) í áfanga Playamar VIII eða
íbúðir í byggingu til afhendingar í desember 2022 í Playamar IX.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is


Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sér garður, svalir, air con, sameiginlegur sundlaugargarður, bílskýli,
Svæði: Costa Blanca,  Pilar de la Horadada,



 

Kort af svæðinu