Spánareignir - Villamartin SPÁNN

44.900.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    101 m2

Tilvísunarnúmer:

557639

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS*- * ÞAKVERÖND OG SÉRGARÐUR*

Glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum á góðum stað á hinu vinsæla Villamartin svæði. Möguleiki á einkasundlaug  eða heitum potti og útieldhúsi með frábærri grillaðstöðu. Göngufæri í  verslanir og veitingastaði.  ca. 40 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín akstur á fallega strönd og 5-10 mín. akstursleið í La Zenia Boulevard, nýju og flottu verslunarmiðstöðina. Ca. 10 mín.  akstursleið á hinn vinsæla götumarkað í Playa Flamenca á laugardögum. Örstutt í Villamartin Plaza. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast góða eign á fínu verði í frábæru umhverfi. Ótal góðir golfvellir í næsta nágrenni.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 477.


Nánari lýsing:
Um er að ræða vel skipulagt hús á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Á neðri hæð er stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt eldhúsi.  Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Útgengi er út á svalir frá öðru svefnherberginu og auk þess gengið upp á góðar þaksvalir með frábæru útsýni yfir Villamartinsvæðið.

Góður lokaður sér garður þar sem hægt er að hafa sundlaug eða heitan pott. Húsin eru vel staðsett í vinsælu hverfi. 
Bílastæði inni á lokaðri lóð.
Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í  stuttu akstursfæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Alicante flugvöllur er í ca. 40-45 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glæsilegt nýtt einbýlishús á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.

Verð:
4ra herbergja einbýli (Þrjú svefnherbergi + Þrjú baðherbergi) verð frá 299.900 Evrur + kostn. (ISK 44.900.000 gengi 1Evra/150ISK)

Hægt er að fá íbúðirnar fullbúnar húsgögnum gegn vægu aukagjaldi, þannig að ekkert er eftir nema að kaupa í matinn og flytja inn.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:http://www.spanareignir.is


Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sér garður, einkasundlaug, þakverönd, air con, sameiginlegur sundlaugargarður, bílastæði,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,

Kort af svæðinu