Property ID : Villamartin0038
Til sölu Ikr 29,000,000 - Íbúð
*FLOTTAR ÍBÚÐIR* *VÖNDUÐ SAMEIGN – STUTT Á GOLFVELLI*
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, veitir allar upplýsingar, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495.
Glænýjar og vandaðar 3ja og 4ra herb. íbúðir á frábærum stað í Villamartin hverfinu, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Stutt akstursleið á fallega strönd og í La Zenia Boulevard, nýju og flottu verslunarmiðstöðina. Stutt göngufæri í Villamartin Plaza þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastaða og verslana. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi.
Nánari lýsing:
Um er að ræða nýbyggð lyftuhús með 3ja og 4ra herb. vel hönnuðum, rúmgóðum og björtum íbúðum. Hægt er að fá íbúðir með tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/borðstofu og stóru eldhúsi með fallegri innréttingu. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð með stórri sér verönd, miðhæðum með góðum svölum eða á efstu hæð og þá með stórum einkaþaksvölum. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sundlaugum og grænu svæði. Góð leikaðstaða fyrir börnin.
SÉRSTAKT TILBOÐ Á NÆSTU ÍBÚÐUM SEM SELJAST: INNIFALIÐ Í VERÐI ER RAFMAGNSTÆKI Í ELDHÚSI (WHITE GOODS), LOFTKÆLING/HITUN, HÚSGÖGN , HÚSBÚNAÐUR OG GARDÍNUR.
Allar íbúðirnar snúa á móti suðri.
Hiti í gólfum á baðherbergjum.
Sér geymsla og stæði í lokuðu bílakjallara fylgja.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. í Villamartin. Örstutt akstursleið í La Zenia Boulevard, sem ný og glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.
Alþjóðlegur skóli í næsta nágrenni.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega. Íbúðirnar eru til afhendingar síðari hluta 2018 og byrjun 2019.
Verð:
3ja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 195.000 Evrum+kostn. (Ikr. 23.400.000 gengi 1Evra/120Ikr)
4ra herb. íbúð (þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 242.000 Evrum + kostn. (Ikr. 29.000.000 gengi 1Evra/120Ikr)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður, allt að Ikr. 60.000 á mann fyrir tvo, eða samtals allt að Ikr.120.000.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 2-3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12-13%.