Property ID : Sunplace280121
Til sölu Ikr 20,300,000 - Efri eða neðri hæð
*FLOTTAR ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRU VERÐI*
Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.
Bjartar og vel hannaðar glænýjar íbúðir á neðri hæð með sér garði eða íbúðir á efri hæð með sér þakverönd í lokuðum garði með sameiginlegri sundlaug í Pilar de la Horadada, snyrtilegum litlum bæ, ca. klst. akstur frá Alicante. Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Lo Romero, Roda golf, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Göngufæri í verslanir og veitingastaði.
Skipulag:
Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa,borðstofa og opið eldhús við borðstofu. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta. Tvö svefnherbergi. Sér baðherbergi með öðru svefnherberginni og auk þess annað baðherbergi.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Gólfhiti er í gólfum á baðherbergjum.
Íbúðum á neðri hæð fylgir sér garður við húsið þar sem er gott pláss, t.d. til að borða úti og njóta sólarinnar.
Íbúðum á efri hæð fylgir stór sér þakverönd með frábærri sólbaðsaðstöðu, skemmtilegri grillaðstöðu.
Fallegur sameiginlegur lokaður sundlaugagarður með góðri aðstöðu.
Sérmerkt bílastæði fylgir.
Frábært verð:
Íbúð á neðri hæð með sérgarði frá 131.000,- Evrur + kostn. (ISK 20.300.000,- miðað við gengi 1E=155 ISK.)
Íbúð á efri hæð með sér þakverönd, auk aðgengis að lokuðum sundlaugargarði, verð frá 141.000,- Evrur+kostn. (ISK 21.900.000,- miðað við gengi 1E=155ISK)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður, allt að ISK 60.000 á mann fyrir tvo, eða samtals allt að ISK 120.000
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.