Property ID : Las Ramblas 1009
Til sölu Ikr 84,900,000 - Efri sér hæð með þaksvölum, Einbýlishús
*EINSTÖK GOLFVILLA Á FRÁBÆRUM ÚTSÝNISSTAÐ*
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is
Stórglæsilegt, rúmgott einbýlishús með einstöku útsýni á stórri lóð með einkasundlaug í fyrstu línu við hinn vinsæla Las Ramblas golfvöll, um 50 mín akstur suður af Alicante. Húsið er á þremur hæðum, og auk þess þakherbergi, þar sem nú er skrifstofa.
Gengið er inn á efstu hæðina og er þar fyrst komið inn í hol og þaðan gengið inn í stórar stofur og fallega borðstofu. Frá stofum er gott aðgengi út á stóra verönd þaðan sem er einstakt útsýni yfir garðinn og golfvöllinn. Vel útbúið eldhús með vandaðri innréttingu, og frábærri eldunaraðstöðu, sannkallað eldhús fyrir matgæðinga, og er útgengi út á veröndina einnig frá eldhúsi. Þvottahús og gestasnyrting á hæðinni. Á veröndinni er frábær grillaðstaða.
Gengið er niður á neðri hæðir og þar eru þrjú góð svefnherbergi, tvö baðherbergi og fataherbergi. Á neðstu hæðinni er svefnherbergi, og stórt tómstundarherbergi, sem nýta mætti sem svefnherbergi. Þar er lítil eldhúsinnrétting, baðherbergi og útgengi út í sundlaugargarðin. Þarna væri hægt að gera litla íbúð. Við sundlaugina er góð sólbaðs- og grillaðstaða.
Húsið er mjög vel útbúið; arinn, loftkæling, hiti og öryggiskerfi. Öryggisgrindur fyrir gluggum. Sérstæður bílskúr. Einkasundlaug. Selst með húsgögnum.
FALLEG EIGN Í GÓÐU ÁSTANDI ÞAR SEM VEL HEFUR VERIÐ HUGSAÐ UM ALLA HLUTI. SKOÐIÐ MYNDIRNAR OG SJÁIÐ MEÐ EIGIN AUGUM.
Húsið er vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á Las Ramblas Golfvellinum. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romera, Roda Golf, La Marquesa og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 5 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Gott úrval verslana og veitingastaða er í næsta nágrenni, auk þess er stutt í heilsugæslu, tennisvöll, fótboltavöll, crazy golf ofl.
Hér er um að ræða algjöra lúxuseign fyrir fjölskylduna og fólk sem kann að njóta lífsins.
Verð: 559.000 Evrur. (ISK 84.900.000,- miðað við gengi 1E=152ISK)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.